Hæg kólnun og harður tónn

Umræðan - A podcast by Landsbankinn

Categories:

Eftir heilt ár af óbreyttu vaxtastigi virðist enn bið eftir að hægt verði að slaka á aðhaldinu. Verðbólga færðist lítillega í aukana í sumar, íbúðaverð hefur haldið áfram að hækka og kortavelta landsmanna hefur aukist milli ára að raunvirði. Staðan er snúin og væntingar um verðbólguþróunina eru enn langt yfir markmiði.Þetta er á meðal þess sem er til umræðu í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.