Æðruleysið - 19. þáttur / Ábyrgð og ákvarðanir

ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp - A podcast by Þú skiptir máli forvarnastarf

Categories:

Velkomin í Æðruleysið Í þessum 19. þætti af Æðruleysinu kemur þáttastjórnandi til baka eftir mjög gott og langt frí, og talar um ábyrgð og ákvarðanir. Hversu mikil áhrif það hefur á okkur og okkar líf, og að taka eða ekki taka ákvarðanir og bera ábyrgð á að fylgja þeim eftir. Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir