Hjartans mál - 8. þáttur
ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp - A podcast by Þú skiptir máli forvarnastarf
Categories:
Verið velkomin í Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Þetta er fyrsti þáttur eftir páska, vor í lofti, það er að birta og sumardagurinn fyrsti handan við hornið. Eins og áður hefur komið fram munum við í þessum þáttum okkar fræðast saman um andlega líðan, lesa hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf auk jafnvægis í sál og líkama. Í þessum áttunda þætti fær af Hjartans mál fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Þegar ekki sést til sólar“ rödd, en Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook. Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson Njótið!! www.thuskiptirmali.is