Rándýrar viðgerðir á sumarbústað forsætisráðherra og borgarstefna

Spegillinn - A podcast by RÚV

Categories:

Framkvæmdir og viðgerðir á forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum kostuðu 609 milljónir. Þegar framkvæmdir hófust haustið 2021 áttu þær aðeins að standa í nokkra mánuði - en þeim lauk ekki fyrr en síðasta sumar. Tillögur um Borgarstefnu Íslands hafa færst verulega frá þeirri upphaflegu framtíðarsýn að Akureyri verði svæðisborg. Þetta er álit lektors við Háskólann á Akureyri. Engin þörf sé fyrir höfuðborgarstuðning til Reykjavíkur sem útlistaður sé í nýrri þingsályktunartillögu. Nær væri að búa til fleiri smáborgir á Íslandi. Þegar almenningur hugsar um almannavarnir tengir hann þær fyrst og síðast við eldgos, óveður, snjóflóð og aðra náttúrvá... og kannski Víði Reynisson á upplýsingafundi um COVID. Þegar fyrstu almannavarnalögin voru sett árið 1962 voru forystumenn ríkisstjórnarinnar hins vegar ekki með hugann við eldfjöll, skriður, rauðar veðurviðvaranir og veirur heldur atómsprengjur og tortímingu mannkyns.