Koma svo! - Stundum er jákvætt að vera latur!
Hlaðvarp Heimildarinnar - A podcast by Heimildin
Hvað þarf til að ala upp einstakling? Boð og bönn? Reglur? Í Koma svo! er rætt við einstaklinga sem vinna við eða koma á einhvern hátt að málefnum barna og unglinga. Umsjónarmaður Koma svo! er Héðinn Sveinbjörnsson sem hefur langan feril að baki í vinnu með alls konar fólki og faðir tvíbura í framhaldsskóla. Í 25. þætti Koma svo! er rætt við Láru Aðalsteinsdóttur, verkefnastjóra Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. Hvað þýðir það að vera Bókmenntaborg UNESCO? Hvað og hvernig er hægt að auka áhuga barna og ungmenna á lestri? Hvernig getur leti haft áhrif á lífið og tilveruna?
