Nútímafjölskyldur og lesbían sem missti forræðið
Fjölskyldan ehf. - A podcast by Margrét Pála og Móey Pála
Categories:
Brjóstagjöfin gengur vel hjá Móeyju Pálu en það var ekki raunin hjá Möggu Pálu sem gat einungis haft Brynju dóttur sína á brjósti í 3 vikur. Það reyndist ungu móðurinni mun erfiðara en hún vildi viðurkenna en hafði sáralítil áhrif á dótturina. Það reyndist þessari ungu móður líka erfitt að horfast í augu við það að hún varð ástfangin af konu en það erfiðasta af öllu var að missa forræði dóttur sinnar vegna samkynhneigðarinnar. Hversu sterk eru tengsl foreldra við börnin sín og hvernig lifa fj...