Íslandstengingar Vitaly Orlovs
Þetta helst - A podcast by RÚV

Categories:
Síðastliðna tvo mánuði hafa verið sagðar margar fréttir í fjölmiðlum um viðskiptaþvinganir gegn fyrirtækinu Vélfagi á Akureyri. Viðskiptaþvinganirnar byggja á því að fyrrverandi eigandi Vélfags er rússneska útgerðarfélagið Norebo. Útgerðin er einn stærsti kvótahafi í Evrópu, meðal annars í Noregi. Þetta fyrirtæki er talið vinna með ríkisstjórn Vladimírs Pútíns og stunda njósnir fyrir hann . Viðskiptaþvinganir eru liður í aðgerðum Íslands, Evrópusambandsins og Noregs gegn fyrirtækjum í Rússlandi í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Norebo er í eigu eins frægasta og stærsta útgerðarmanns Rússlands, Vitaly Orlov. Talið er að núverandi eigandi Vélfags, svissneskur bankamaður sem heitir Ivan Nivolai Kaufman, sé að leppa eignarhaldið á Vélfagi fyrir hann. Þessar fréttir um Vélfag og viðskiptaþvinganirnar eru án hliðstæðu hér á landi. Vitaly Orlovs hefur hins vegar fleiri tengingar við Ísland en í gegnum vélfag. Nöfn fyrirtækja hans hafa dúkkað upp í lánaskjölum íslenskra banka í gagnalekum og fyrirtæki hans keypti Afríkútgerð Samherja árið 2013. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson