Fjölfatlaðar fjögurra ára drengur fær ekki vernd á Íslandi
Þetta helst - A podcast by RÚV

Categories:
Fjölfatlaður fjögurra ára drengur frá Venesúela fær ekki vernd eða mannúðarleyfi til að setjast að á Íslandi. Þetta er niðurstaða Útlendingastofnunar frá því í byrjun október. Drengurinn heitir Elían og er með klofinn hrygg, vatnshöfuð og er bundinn við hjólastól og næringarinntöku í gegnum sondu. Móðir Elíans, Leidy Díaz, ætlar að áfrýja synjuninni til kærunefndar útlendingamála. Rætt er við Leidy í Þetta helst í dag og fjallað um mál hennar og sonar hanns. Lögmaður hennar, Jón Sigurðsson, segir að mál Elíans sé án hliðstæðu hér á landi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson