Annar þáttur

Allir deyja - A podcast by RÚV

Categories:

Útfararstjórar deyja. Nammigrísir deyja. Prestur deyr. Áhugamenn um tölvu- og byssuleiki deyja. Í þáttunum Allir deyja er rætt við fólk um dauðann - hvert er samband okkar við dauðann? Hvernig breytist það með aldrinum? Eigum við til að forðast dauðann? Hvað tekur við? Viðtölin í þessum þáttum hófust sem rannsóknarverkefni fyrir Borgarleikhúsið, þar sem spyrill þáttanna starfar sem leikskáld. Rætt var við Steineyju Skúladóttur, Pálma Frey Hauksson, Hrefnu Hugosdóttur, Unu Þorleifsdóttur og Emilíu Jónsdóttur. Einnig heyrðist í Sigurði Þór Óskarssyni leikara. Tónlistarval: Friðrik Margrétar- Guðmundsson. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Umsjón: Matthías Tryggvi Haraldsson.